Hugmynd að björgun túnanna undir Eyjafjöllum

Það kom í huga minn að mögulegt væri að ryðja öskuhjúpuð túnin með því að ryðja henni í burt með stórvikum snjókústum, sem notaðir eru til að ryðja snjó af flugbrautum. Er ekki mögulegt að athuga þennan möguleika?

TIL HAMINGJU MARTA!!!

Póstkort frá Grænlandi

Hjartanlega til hamingju með þetta frábæra framtak

Marta okkar! (Sbr.strákarnir okkar).

 

Þú ert kjarna kona og bætist í glæsilegan hóp afreksfólks á Íslandi.

Ekki veitir af að vekja athygli á brjóstakrabbameini, en sá sjúkdómur  hefur bæði lagst á fjölskyldu mína og fyrrverandi tendafjölskyldu.

Ég þarf ekki að láta hugann reika nema nokkur sekúndubrot til að það hrannist upp myndir af konum, í huganum, sem ég þekki persónulega og einnig af afspurn - sem hafa fengið þennan sjúkdóm og hafa sloppið alveg, misvel, og því miður - sumar ekki.

Þú hefur svo sannanlega lagt þungt lóð á vogarskálina með þessu framtaki þínu, til að uppræta þennan sjúkdóm.

Með innilegum kveðjum, þakklæti og stolti!!!

Þorsteinn Erlingsson

 


 E.s.

Fyrir þá sem ekki vita, þá lagði Marta G. Guðmundsdóttir uppí langa og stranga ferð, gangandi á skíðum yfir Grænlandsjökul,  skömmu eftir að hún lauk meðferð við þeim sjúkdómi sem greindist hjá henni árið 2005 - það er brjóstakrabbamein.

Marta lauk skíðagöngu sinni yfir Grænlandsjökul þann 10. þessa mánaðar og var fegin að hafa „fast“ land undir fótum þegar hún kom niður af jöklinum.

Auglýsing hér á bloggsíðum mbl.is, um þessa afreksgöngu, fyrrverandi krabbameinssjúklings, til að vekja athygli á sjúkdómnum sem hún fékk og til að safna fé til frekari rannsókna á honum og forvarna, virðist mér hafa farið fram hjá alltof mörgum bloggurum hér á blog.is.

Ef ráða má af gestabók hennar þá eru árnaðaróskirnar 99% frá óskráðu  fólki en ekki blog.is bloggurum.

Það er eitthvað sem veldur því að ef eitthvað er of nálægt manni og lengi þá er eins og við hættum að taka eftir því. (Sbr. maka
Whistling )

Sinnuleysið má bæta upp með því að kaupa póstkort hér, með því að smella á mynd eða á bloggsíðu Mörtu á blog.is og styrkja þar með verulega mikilvægt málefni og efla þannig tilgang þess að leggja á sig blóð, svita og tár fyrir aðra!

 


Það vantar meiri fjölbreytni í tilfinningasemina á blogginu!

     Það er mín skoðun að okkur bloggurum séu settar ansi þröngar skorður í að tjá tilfinningar okkar - með táknum, og á ég þá við að mér finnst flóra bros og grát karla ansi fátækleg - og fer ég hér með varfærnislega í að biðja þá, sem þessum málum ráða, að leyfa okkur að vera svolítið tilfinningaríkari og úthluta okkur fleiri tilfinninga táknum.
    

     Með fyrirfram þökk!


Hversu mörg tonn af eldsneyti eyðast á hvern farþega í flugi?

     Mig hefur oft langað til að vita hve mörg tonn, að meðaltali eyðast við að flytja hvern farþega með gömlu Fokker vélunum okkar miðað við meðal sætanýtingu og flugveður - og einnig hvað þær eyði miklu eldsneyti á milli Akureyrar og Reykjavíkur fullar af farþegum v.s. tómar!     

      Með öðrum orðum: Hversu mörgum tonnum af brunnu eldsneyti er dreyft yfir hálendi Íslands, og þar með ósnortna náttúru, við hvert flug Fokkervélar (við þau skilyrði sem sett voru hér að ofan) milli Akureyrar og Reykjavíkur? 

      Einnig væri forvitnilegt að vita hversu mikill útblásturinn er á hvern farþega eftir þeim flugvélategundum sem við erum með í notkun í landinu. 

 


mbl.is Útblástur á hvern farþega einkaþotu tífaldur á við farþegaflug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björgúlfs feðgar, Magnús Ármann, ég og líkamsárásir

          Í framhaldi af skrifum mínum um líkamsárásir hér á síðunni í gær. Langar mig aðeins til að minnast á nokkur önnur tilfelli af tilefnislausum árásum bæði  á mig og aðra.

    Ég verð aðeins að minnast á þá Björgúlfs feðga og Magnús Ármann, í stuttu máli og algerlega eftir minni. Þegar þeir gengu niður Laugaveginn eina bjarta sumarnótt - um það leyti sem þeir voru að selja bjórverksmiðjuna í Rússlandi, að ráðist var á Magnús, af bráðókunnugum manni (mönnum?) og var hann barinn þangað til að hann lá í götunni og gat enga björg sér veitt.

      Það kom fram í máli Björgúlfs eldri í fjölmiðlum eftir þennan atburð, að þeir hefðu oft verið á ferð, gangandi að næturlagi þarna úti og æðioft komist í tæri við mafíuna og ýmis glæpagengi, en aldrei orðið fyrir jafn hatramri og fólskulegri árás sem þessari - algerlega að tilefnislausu.

     Það var Magnús sem dvaldi lengst, af þeim félögum, þarna úti í Rússlandi og því hafi það verið kaldhæðni örlaganna að það var hann sem lenti í þessu.

      Ég verð að segja, að þrátt fyrir að ég sé tæpir tveir metrar á hæð og nokkuð stæðilegur, þá þori ég, satt best að segja, ekki gangandi niður í bæ eftir lokun verslana, því oftar en ekki hef ég á umliðnum árum lent í því að gengi þrettán til sextán ára unglinga og þá að mestu leyti drengja hafa veist að mér og öðrum nærstöddum, þrátt fyrir að ég hafi verið í hópi „myndarlega“ vaxinna manna og hafa það oft verið erlendir ferðamenn, sem hafa verið á mínum vegum hér á landi.

      Í einu tilfellinu gat ég með naumindum komið þeim inn í leigubíl áður en alvarlegar líkamsmeiðingar áttu sér stað, en strákarnir tóku dýrindis, leður húfur af  tveimur, heldri, stæðilegum Suður Afríku mönnum og notuðu þær sem „frizzby“, ásamt því að láta mjög dólgslega við þá - ýtandi í þá og hrindandi þessum fullvöxnu karlmönnum.

     Þessi hópur minn hafði eytt loka kvöldinu sínu á Kaffi Reykjavík og vildi fá sér Hlöllabát fyrir svefninn, en þá var klukkan rúmlega þrjú að nóttu. - Þeir fóru því bæði húfu og Hlöllalausir í háttinn, með slæmar minningar í farteskinu frá næturlífi Reykjavíkur - að þessu leyti.

      Samkvæmt lögreglusamþykkt hefði stór hluti af íslenska strákahópnum átt að vera löngu kominn heim til sín! Mér fannst þetta að sjálfsögðu mjög leiðinlegt og slæm kynning á landi og þjóð.

     Þurfti að hlaupa í felur og skilja stúlkuna eftir

      Nokkrum vikum síðar gekk ég ásamt góðri vinkonu minni, um svipað leyti að nóttu frá Kaffi Reykjavík yfir Ingólfstorgið í áttina að Austurvelli. Þegar að gangstígnum inná torgið var komið gengum við næstum í flasið á gengi - þrettán til sextán ára unglinga. Fjarlægðin á milli okkar og þeirra nægði til þess að ég gat forðað mér á hlaupum og falið mig eftir að hafa sammælst við samferða konu mína um hvar við skyldum hittast. Það síðasta sem ég heyrði áður en ég hvarf á braut, var að hún sagði; „Strákar! Þið ætlið varla að fara að berja stelpu!  Er það nokkuð?“, en hópurinn svaraði því með spurningu og sagði; „Hvar er þessi sláni sem þú varst með áðan? Við ætluðum nefnilega að buffa hann í klessu!“.

     Þessi orðræða gaf mér aukinn tíma til að hlaupa þennan krók sem ég þurfti að fara til að geta skotist  til hennar úr felum fyrir utan þáverandi húsakynni Samvinnuferða, þar sem hún starfaði og hafði lyklavöld. Við gátum flúið þangað inn um leið og við tókum eftir strákagerinu koma hlaupandi af Austurvellinum í áttina til okkar, því þeir höfðu komið auga á mig og sennilega ætlað að jafna um mig, eins og þeir höfðu talað um - þrátt fyrir að engin þeirra virtist þekkja mig.
     Þetta hef ég látið nægja af gönguferðum mínum um miðbæinn, eftir að verslunum hefur verið lokað.

     Ætlaði að opna og að öllum líkindum að berja mig í bílnum

     Ég hef haft það fyrir reglu, allt frá því að ég var, á mikið upphækkuðum jeppa, að koma úr Stjörnubíói að maður réðist að bílnum og reyndi að opna hurðina bílstjóramegin, en sökum þess hversu hár bíllin var og ég gat aukið snögglega hraðann, náði hann ekki að opna. Ég hef haft það fyrir reglu síðan að þetta gerðist að aka með allar dyr og farangursgeymslu læstar, þegar ég ek um borgina að kvöld- og næturlagi.

    Það er hnappur í þeim bíl sem ég á núna sem ég get ég læst öllu sem hægt er að læsa samstundis.

     Ég held að ég sé ekki meiri raggeit en gengur og gerist, nema síður sé, en eftir það sem ég hef upplifað í þessu sambandi, finnst mér engin ástæða til bjóða hættunni heim - að óþörfu.
 
     Ef ég á erindi niður í bæ, að kvöldlagi og er á eigin bíl þá reyni ég að leggja honum eins nálægt þeim stað sem ég ætla að dvelja á um kvöldið, en annars bíð ég inni á staðnum eftir leigubíl og er þá jafnvel búinn að panta hann fyrirfram.

        Allt það sem að fram hefur komið í skrifum mínum í sambandi við þessi mál bæði í gær og í dag er því miður satt og það sorglega er að óöruggastur er ég í Reykjavík af öllum borgum Evrópu hvað tilefnislausar árásir varðar.    

      Höfuðborg þess lands sem ég ann mest og hef  hingað til verið að springa úr stolti að sýna ferðamönnum, sem leiðsögumaður, hvort sem þeir eru erlendir eða innlendir er því miður, að mínu mati hættulegri en margar aðrar borgir Vestur Evrópu, eftir að hafa talað bæði við Íslendinga sem dvalið hafa langdvölum erlendis og einnig alla þá erlendu ferðamenn sem ég hef rætt þessi mál við á um þrjátíu ára ferli mínum sem fararstjóri og leiðsögumaður.
      


Mér þætti vænt um...

    Það er frábært að geta sagt skoðun sína og komið henni á framfæri á auðveldan og fljótlegan hátt. Þær birtast alheiminum strax eftir að skrifum er lokið. Hvort sem erlendir netverjar geta lesið það sem á þessum vettvangi er skrifað sér til gagns eður ei, þá nýtast þau örugglega að einhverju leyti þeim sem skilja hið ástkæra og ylhýra mál okkar, hvar sem þeir eru í heiminum.
     Ég verð að viðurkenna að mig langar oft til að eiga orðaskipti við suma sambloggara mína, án þess að þurfa að opinbera það öllum og þá væri mjög gott að þeir hefðu tölvupóstfang sitt á síðum sínum - sjái þeir enga vankanta á því.
     Ég þarf ekki að taka fram að viðkomandi þarf ekki að svara, hafi hann ekki áhuga á þessum samskiptum og lendir þá póstur sendandans einfaldlega í flokki ósvaraðs pósts, sem flestir hafa í tonna tali í fórum sínum.
       Með von um góðar undirtektir!
Smile

Ómar, ég og árásirnar sem við urðum fyrir!

    

     Þeir sem ekki hafa lesið eða heyrt sögu Ómars Ragnarssonar um þá fólskulegu árás sem hann varð fyrir um miðjan maí síðast liðinn, ættu að skjótast inná síðuna hans og lesa þar hvað gerðist.


    Í stuttu máli var hann að aka Vesturlands-veginn til vesturs, og var að koma af fornbíla sýningu sem haldin var uppá Höfða.
    
    Hann var á litla Prinzinum sínum þegar bíl var ekið framúr honum, með manni hálfum út um farþega glugga, öskrandi „Ómar! Helvítið þitt!“.
    
    Bíllinn var stöðvaður skáhalt á þessari þriggja akreina stofnbraut, sem átti að varna því að hann kæmist áfram.
    
    Maðurinn kom froðufellandi út með hnefann á lofti en Ómari tókst að snúa bíl sínum þannig að hornið, farþegamegin, þar sem hurðin var læst, snéri þá að manninum, sem beið ekki boðanna og þrumaði hnefanum í gegnum rúðuna þeim megin  en hnefinn náði ekki til Ómars. Maðurinn lét því hnefann dynja á bifreiðinni svo að stór sá á bílnum, einkum vélarhlífinni.
    
    Ómar, sem aldrei hafði stöðvaði bíl sinn alveg komst í burtu af vettvangi og eins skjótt og fanturinn kom var hann á bak og burt, þannig að Ómar slapp með skrekkinn.
 
    Ég er því ólýsanlega feginn að hann slapp óskaddaður frá þessum hildarleik og á hann alla mína samúð að hafa lent í þessu.
     
    Ég er sannfærður um að þessi árás hafi verið tilefnislaus - þrátt fyrir að mannfíflið hafi öskrað nafnið hans. Flestir þessara fantar búa, að mínu mati, einfaldlega ekki yfir nægjanlegu viti og rökhugsun til að skipuleggja svona nokkuð og því er ég viss um að þetta var bara óláns tilviljun.

    Öfgarnar sjást gleggst þegar fólk, hér á landi, er barið í götuna og þegar það er hætt að verja sig þá hefja árásarmennirnir ekki að leita eftir verðmætum á því, heldur halda þeir misþyrmingunum áfram með því að sparka í það liggjandi og hversu lengi fer sennilega eftir þolinmæði eða ánægju hvers og eins.

     Á flestum stöðum erlendis er yfirgnæfandi fjöldi árása til að hafa fé eða annað, sem talið er vera verðmætt, af fólki; svo sem skartgripi, skilríki og vegabréf, sem hvoru tveggja hefur verið hægt að breyta og falsa þar með.

    TILEFNISLAUS ÁRÁS Á MIG Í REYKJAVÍK

     Ég hef lent í hvoru tveggja: Annars vegar tilefnislausri árás hér í Reykjavík og síðar í árás, sem hafði tilgang - í Amsterdam.

    Líkamsárásin í Reykjavík

     Í því tilfelli var árásarmaðurinn einn af fleiri veitingamönnum og eigendum Gauks á Stöng og var hann einn við vinnu á barnum, þegar mig bar að.
     
     Þetta var daginn fyrir þrítugs afmælið mitt og ég var að koma úr afmælishófi í Hlaðvarpanum, tiltölulega snemma kvölds, þegar við systir mín og tvær vinkonur hennar ákváðum að fá okkur eina bjórkollu áður en við héldum heim á leið, því ég ætlaði að halda upp á afmælið mitt daginn eftir.
      
     Þar sem ég stóð fyrir framan stórt og breitt barborðið innan um fjölda fólks vissi ég ekki fyrr til en barþjónninn hrópaði tryllingslega nafnið mitt, um leið og hann teygði sig yfir borðið, leiftursnöggt og tók mig hálstaki, sem ég náði ekki að losa mig úr, og barði án afláts stál hanastéls hristara í gagnauga mitt þangað til að æðar í höfðinu sprungu og blóðið spýttist yfir mig allan og yfir ný föt sem ég hafði keypt fyrir viðtal sem ég átti að eiga við Eddy Murphy í Amsterdam um viku síðar.
    
     Fólkið í kringum okkur hreyfði hvorki legg né lið mér til hjálpar og þegar árásarmaðurinn hafði lokið sér af, hélt hann áfram vinnu sinni eins ekkert hefði í skorist og það var á honum að sjá að honum þætti þetta eðlilegasti hlutur í heimi.
     
     Ég var svo þrumulostinn og hissa þannig að til allrar hamingju hélt ég ró minni - því ég var mun hærri og öflugri en hann og mér hefði verið í lófa lagið að vippa mér inn fyrir borðið og jafna um kauða - að mér fannst. En þegar maður lítur til baka þá hefði það ekki verið svo viturlegt.

       Það er staðreynd, að til dæmis eftir neyslu englaryks PCP, þá er eins og afl vöðvanna margfaldist, menn éta gler og oft þarf að skera á sinar í hendinni eða upphandlegnum til að losa vopn úr höndum þeirra.
 
      Mér fannst ég ekki hafa neitt uppúr einhverri gagnárás og vissi þar að auki ekkert um í hvaða ástandi maðurinn var. Það varð því úr að ég bað systur mína að fara yfir á miðbæjarstöð lögreglunnar og kalla þar lögregluþjóna til vitnis. Vinkonur hennar náðu í þurrkur á salernum staðarins til að ég gæti haft einhvern hemil á blóðrennslinu. Ég held að lögreglan hafi talað eitthvað við manninn og fólk sem var þarna á staðnum en ég hef aldrei fengið neina staðfestingu á því.

 

The image “http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/e/e8/Hafnarfjardarbilar.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
 Ljósm.: Hafnarfjarðarlögreglan

     Tveir lögregluþjónar óku okkur systkinunum á slysavarðstofuna þar sem ég var saumaður. Síðar prísaði ég mig sælan fyrir að blóðið skyldi spýtast út, í stað þess að renna undir húðinni yfir hálft andlit mitt og mynda jafnstórt mar.

    Ég hringdi til mannsins uppúr hádegi, daginn eftir. Börn og svo eiginkona komu í símann og sögðu mér að hann væri sofandi, því hann hafði verið við vinnu kvöldinu áður. Ég krafðist þess að fá að tala við manninn, sem kom í símann, en hann gat enga skýringu gefið á þessu athæfi sínu og spurði hvort ég gæti ekki hringt seinna því hann vildi fá að sofa áfram. Ég gerði það og þá tjáði hann mér að ég hefði alls ekki verið með neinn dónaskap og hann ræki varla minni til þessa atburðar og sagði, að mig minnir, að sér þætti þetta frekar leitt.

     Ég sagði honum að ég væri á förum til útlanda og hefði nýlega keypt þessi föt, sem ég hafði verið í, til fararinnar. Hann sagðist viljugur að bæta mér skaðann en hann vildi að ég reyndi fyrst að fara með fötin í hreinsun og benti mér síðan vinsamlega á að ég gæti keypt mér ný föt úti, því föt hlytu að vera ódýrari þar en hér og þegar ég kæmi heim skyldi hann greiða mér eitthvað í skaðabætur -fyrir fötin!

      Mér var tjáð í hreinsuninni að fötin kæmu alltaf til að missa lit þar sem reynt yrði að ná blóðinu úr og því yrðu þau aldrei eins og ný og sum jafnvel bara til að nota í einhvers konar óþrifavinnu eins og garðvinnu, til dæmis í sumarbústað.

       Ég fór niður á Gauk á stöng og talaði við hina
eigendurna, sem sumir höfðu verið með mér í MH. Þeir borguðu mér út í hönd andvirði fatanna og hvöttu mig til að kæra manninn (þannig að eitthvað hafa þeir vitað meira en ég um manninn). Ég fór því uppá lögreglustöð og hugðist kæra. Mér var sagt af lögregluþjóni þar að ef ég kærði og léti kæruna gagna áfram þá væri allt eins líklegt að staðurinn myndi missa vínveitingaleyfið, sem segir sig sjálft að myndi gera útaf við hann. Mér hugnaðist það ekki þegar ég hugsaði til fyrrverandi skólafélaga minna sem voru alsaklausir og höfðu þar að auki greitt mér skaðabætur umyrðalaust fyrir misgjörðir félaga síns. Við svo búið ráðlagði þjónn réttvísinnar mér að hann myndi geyma þessa kæru í skúffu hjá sér þangað til mér hugnaðist að gera alvöru úr málinu - sem enn hefur ekki orðið!

      Furðulegast af þessu öllu var að ég hafði bæði skrifað mjög vinsamlega grein um staðinn og einnig um bjór sem þeir höfðu látið framleiða undir merkjum staðarins ásamt því að birta myndir af þeim öllum kampakátum - en þetta var þakklæti þessa manns.
      Ég hitti hann nokkrum árum síðar þegar ég kom sem leiðsögumaður með ferðamenn á Hótel Hallormsstað og tók hann þá á móti mér sem hótelstjóri, hafði rakað höfuð sitt bersköllótt og sagði um leið og ég kom inn „No hard feelings? Er það nokkuð? Þetta er bara búið og gert og eigum við ekki bara að gleyma þessu?“ Það var fátt um svör af minni hálfu og sambúðin í þessa tvo daga gekk stórslysalaust fyrir sig.

     Ég frétti það hjá starfsfólkinu að hann hafði farið í einhvers konar meðferð og gáfu í skin að það hefði verið eiturlyfja meðferð - án þess að ég hafi fengið það staðfest.

     Ég hef ekki heyrt af þessum manni né séð eftir þetta.

      ÁRÁS SEM HAFÐI TILGANG

    Í hinu tilfellinu var ég í Amsterdam, við blaðamennsku, þegar ég gekk heim eftir að hafa verið á næturvakt með lögreglumönnum borgarinnar í hættulegasta hverfi hennar Rauða hverfinu, bæði gangandi og akandi - en mest gangandi þar sem hliðar götu og aðrar götur meðfram síkjunum voru ansi þröngar.


Police Amsterdam
Ljósm. siebe

 

     Að viðburðaríkri vaktinni lokinni, um sex leytið að morgni og enn í náttmyrkri hélt ég heim á leið, sem hefur ekki verið meira en um 20 mínútna gangur, hefði ég farið eftir því sem upplýsingafulltrúi lögreglunnar sagði við mig fyrr um daginn þegar ég spurði hann, í höfuðstöðvum lögreglunnar í Amsterdam, (og sótti um að fá að fylgjast með þessari vakt) hvort þessi borg væri hættuleg. Svaraði hann því til að gengi maður að næturlagi eftir stóru, upplýstu, götunum væri hættan á að verða fyrir einhverju aðkasti hverfandi.

    Ég gekk út úr Rauða hverfinu í fylgd tveggja lögregluþjóna sem ég kvaddi og gekk upp vel lýsta verslunarbreiðgötu, sem lá alla leið upp að aðaljárnbrautarstöðinni, sem var allnokkur spotti og þar hefði ég þurft að taka stóra u-beygju og til baka á aðra vel upplýsta breiðgötu og ganga niður undir þann stað sem ég var á nema að þar hefði hótelið mitt verið.
 
     Myndavéla taskan sem ég var með á öxlinni innihélt tvennt af öllu fyrir utan rafhlöður og tvö þung upptökutæki, var farin að síga heldur betur í eftir alla göngu næturinnar. Þarna þar sem ég gekk rólega upp götuna var mikil freisting ganga til hægri og fara eftir mjórri götu næstum því einstigi sem skar u-ið í tvennt og sömuleiðis vinsælustu verslunargötu borgarinnar „Kalvestraat“ sem á þessum tíma sólarhrings var svo til óupplýst og grá fyrir járnum, þar sem málmtjöld voru fyrir öllum framveggjum hverrar verslunar.

    Þegar ég var kominn á móts við hótelið mitt hinu megin u-sins tók ég þá ákvörðun að beygja til hægri inná eitt þessara einstiga, þar sem inngangurinn var varðaður af skært upplýstu „Cambioi“, sem gaf mér ákveðið traust. Þar var hægt að taka út reiðufé af kreditkorti eða skipta ferðatékka. Þarna var opið allan sólarhringinn og hvít og svartklætt fólk var þar fyrir innan þykkt, skothelt gler til þjónustu reiðubúið.

     Það nikkaði til mín um leið og ég hraðaði mér eftir einstiginu, hljóp þvert yfir „Kalvestraat“ og yfir að hinum helmingi þessarar þröngu götu. Það var ekki sála á ferð og mér fannst ég sjá glitta í hótelið mitt. Mikið hlakkaði ég til að leggjast niður og hvíla mig!

      Þegar ég var nýkominn inn á einstigið aftur snéri maður sér að mér, svartur á hörund, Surinami - að ég held og var eftirtektarvert að hann var pollrólegur. Hann spurði hvort ég ætti eld, en áður en mér gafst ráðrúm til að svara tók hann eldsnöggt upp fjaðurhníf og stakk honum þéttings fast að hálsi mér, með oddinn fram þannig að mér fannst sem hnífurinn hefði gengið örlítið inn í hálsinn - svo mikill var sársaukinn. Hann skipaði mér ákveðið að láta sig hafa peninga. En ég bað hann um að vera rólegan og sagðist vera að ná í þá, en honum fannst ég eitthvað svifaseinn og  tók þá að öskraða á mig að afhenda sér peningana strax,  jafnframt því sem hann hótaði að stinga mig í kviðinn. Þegar ég var við það að taka upp lausa peninga úr innri brjóstvasanum á jakkanum mínum teygði hann aðra höndina á eftir minni niður í vasann og náði þar með öllu sem þar var; lausafé, alþjóða blaðamanna passanum, kreditkortum, sem voru í leður hulstri og vegabréfinu mínu. Við svo búið hvarf hann á braut.

     Ég er ekki vanur að vera með vegabréfið á mér en á þessum tímum var lítið um hraðbanka í Amsterdam, en þeim mun meira af af þessum litlum skotheldum búrum sem báru yfirskriftina „Cambio“, þar sem ég þurfti að sýna vegabréfið mitt.
      Þessi árás var gerð af ákveðnu tilefni öfugt við það sem gerðist í heimaborg minni!

      Þegar maðurinn var horfinn hljóp ég mína leið heim á Holliday Inn hótelið mitt og sagði næturvaktinni þar mínar farir ekki sléttar og benti starfsfólkið mér á að tilkynna þetta til lögreglunnar til að ég gæti hugsanlega fengið eitthvað út úr tryggingunum og í öllu falli neyðar kreditkort frá korta fyrirtækinu.

     Ég gekk því yfir götuna og inná lögreglustöðina og fékk sögu mína skráða. Eftir það var komið með bunka af ljósmynda albúmum og ég vinsamlegast beðinn um að reyna að bera kennsl á árásarmanninn.

     Ég hafði séð andlit hans nokkuð skýrt, miðað við aðstæður, og var því nokkuð vongóður um að þekkja hann. Þegar ég hóf að fletta í gegn um þessar hundruðir mynda fór mér að líða eins og þegar ég kom fyrst til frænda míns Árna bónda á Bíldsfelli eftir stækkunina á fjárhúsinu, sem þá hýsti tæplega þúsund ær og lömb þeirra og þær nær undantekninga laust alhvítar. Mér fannst þær allar eins!!! Sama gilti um þessar hundruðir negramynda að
mér fannst þær svo að segja allar eins.    

    Einhverjum allt of mörgum hálftímum síðar gafst ég upp og það varð bara að hafa það.
 
     Þegar ég heimsótti kunningja mína á lögreglustöðinni frá því um nóttina í Rauða hverfinu þar næsta dag, komst ég að því að sá svarti hafði að öllum líkindum verið látinn vita af ferðum mínum skömmu áður, því líkurnar á að hitta mann í þessu mannlausa hverfi, á þessum tíma sólarhrings, voru hverfandi - án þess að látið væri vita af ferðum mínum.
 
       Þessu ótrúlega kerfi mun ég lýsa í annarri færslu og segja einnig frá því að mér tókst að finna kauða um miðjan dag tveimur dögum síðar og hjálpaði það mikið til að hann var í sömu fötunum og um nóttina þegar árásin átti sér stað.

     NÆST ÞEIRRI TILFINNINGU SEM ÉG GET ÍMYNDAÐ MÉR AÐ FÓRNALÖMB NAUÐGARA UPPLIFI

     Ég held að þarna hafi ég komist næst þeirri tilfinningu að vera nauðgað. Ég var gjörsamlega varnarlaus og það var algerlega undir þessum ókunnuga manni komið hvað verða myndi um líf mitt, líkama og limi.

     Ég upplifði þetta sem algera niðurlægingu, því þarna var aðallega vegið að andlegu lífi mínu og sjálfstæði sem frjáls einstaklings og ég þvingaður andlega til að gera eitthvað gegn mínum vilja með hótunum um líkamsmeiðingar og lífláti. Hvað vissi þessi maður um líffærafræði? hugsaði ég með mér eftirá. Hvar hefði þessi langi hnífur lent í iðrum mínum og hversu miklum skaða hefði stungan valdið? - hefði hann gert alvöru úr hótun sinni.

      Af þessum þremur dæmum er hægt að sjá muninn á tilefnislausum árásum á Íslandi og árás með tilefni og skipulagi erlendis!


Úði sem lætur fólk hverfa

  Það er greint frá því í Jullands Posten að nú geti fræga fólkið úðað á föt sín vökva og þegar tekin er mynd af því, sennilega með leifturljósi þá sést aðeins hvít klessa á myndinni og á þann hátt geti það komið í veg fyrir að ljósmyndir, sem því finnst vera óvelkomnar í fjölmiðlunum, birtist þar.
    Þeirri spurningu er varpað fram í lok greinarinnar, sem birtist á mb.is í dag, hvernig þessi úði muni svo fara með húð viðkomandi.
    Í meginmáli er talað um að úðað sé á föt viðkomandi en í lok greinarinn er spurt hvernig úðin muni fara með húð viðkomandi.

   Mér er því spurn á hvað á að úða og gefur dagsljós nægjanlegt endurvarp til að eyðileggja myndirnar?


      Já STÓRT er spurt!!!
Smile


Ekkert í sauðargæru!

    Það er fátt sem mér finnst hvimleiðara en fyrirsögn greinar - ég tala nú ekki um forsíðu fyrirsögn eða titill á kvikmynd eða bók sem ýtir undir miklar væntingar af því sem koma skal, en þegar nánar er að gáð er efnið algerlega innihaldslaust.
     Ég varð fyrir þessari leiðinlegu reynslu fyrir skömmu og ekki í fyrsta sinn. Ég sá fyrirsögn framan á einu af hágæða tímaritum landsins, sem hljóðaði eitthvað á þessa leið; „Frægðin eyðilagði einkalífið“ og átti hún að höfða til ummæla Magna Ásgeirssonar, en stór mynd af honum prýddi alla forsíðuna.
     Ég hafði séð þetta blað á nokkrum stöðum til sölu, en þá hafði fjárhagurinn ekki verið uppá það besta til að kaupa þetta tæplega eitt þúsund króna rit.
     Dag einn hafði eitthvað rofað til í fjármálunum svo ég ákvað að skella mér á eitt eintak, þar sem ég hafði fylgst grannt með veru Magna í Bandaríkjunum og eftir að hann kom heim. Ég hafði mikið álit á drengnum og eiginkonu hans, sem hann hafði þráð svo mikið ásamt kornungum syni þeirra, þegar hann var ytra.
     Mér hafði nýlega borist til eyrna að hjónaband Magna væri í uppnámi, sem hryggði mig mjög og langaði mig til að fá einhverja staðfestingu á því.
     Þessi grein var það fyrsta sem ég hafði rekist á þar sem Magni sjálfur tjáð sig og fyrirsögnin gaf skýrt til greina að hann myndi tala um neikvæð áhrif frægðarinnar á einkalíf sitt. Ég var því glaður að hann kæmi fram í eignin persónu og útskýrði þessi sorglegu mál og staðfesti það sem staðfesta þurfti. Það lá því spenna í loftinu hjá mér, að vita hvað hefði eiginlega gerst.
     Það fyrsta sem blasti við þegar ég leit á greinina var, að hún var sett upp með ljósum stöfum á svörtum grunni, sem mér fannst mjög erfitt að lesa, en þegar ég hafði kraflað mig fram úr greininni blasti sú nöturlega staðreynd við að ekki EITT aukatekið orð um einkalíf Magna var þar að finna, heldur endurtekið efni um allt annað, sem ég hafði allt heyrt áður, frá orði til orðs, bæði í Kastljósi í umsjá Evu Maríu eftir að Magni var nýkominn til landsins og einnig í öðrum þáttum sem ég ætla að ég hafi séð á SkjáEinum í þættinum „Frá 6 til sjö“.
     Þetta tel ég hrein vörusvik og er að mínu mati skólabókardæmi um ekkert í sauðargæru!
Bandit


Hvað er helmingi meira?

      Það er talað um það bæði í ræðu og riti að eitthvað sé helmingi meira, eða einhver sé helmingi eldri eða hitt og þetta sé helmingi þyngra eða helmingi erfiðara en eitthvað annað.
      Mér finnst það mjög á reiki hvað fólk á við þegar það er að tala um að eitthvað sé helmingi meira. Er það þá að tala um að eitthvað sé einu og  hálfu sinni meira eða tvöfalt meira?
      Mér finnst að það þurfi með einhverjum hætti að festa þetta niður í eitt skipti fyrir öll, en með hvaða hætti lýsi ég hér með eftir.
       Þetta er mál sem þarf að leysa fljótlega því oft á tíðum veldur mismunandi skilningur sem lagður er í þessa málnotkun misskilningi og er ég nokkuð viss um að hann hefur oftar en ekki valdið alvarlegum árekstrum í daglegu lífi, þrátt fyrir að oftast sé hægt að lesa úr kringumstæðum hvað átt er við.

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband